Fáráðlingur

Mér vekur spurn hvaða fáráðlingur skrifaði þessa frétt?

Ekki er nóg með að efni þessarar færslu sé alveg út í hött, heldur notar blaðamaðurinn einnig latínu (sbr. "nota bene") á ÍSLENSKUM fréttavef. Þetta er ekki frétta- eða blaðamennska, þetta er rusl!

Svipað og fréttin þar sem bloggari skrifaði um að honum finndist Birgitta Haukdal vera óþarflega gul í Laugardagslögunum. Þetta er bara hundleiðinlegt og ófréttnæmt efni. Það er verulega skrítin þróun þegar blaðamenn eru farnir að skrifa fréttir út frá því sem er bloggað um fréttir.

Enn og aftur, rusl.

Ég er þess fylgjandi að Mogginn sýni hver hafi skrifað Moggafréttir, líkt og er gert við fréttir frá 24 sem eru birtar á mbl.is. Bara svo við getum gert grín að þeim sem skrifaði fyrri fréttina - jafn mikið og við getum gert við þann sem skrifaði Birgittu fréttina.
mbl.is Ofurbloggari gleymir að minnast á Nell
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband